Hafdís Gísladóttir, aðstoðarmaður umhverfisráðherra
Hafdís Gísladóttir, aðstoðarmaður umhverfisráðherra
Prentsmiðjan Oddi fékk vottun norræna umhverfismerkisins Svansins.

Prentsmiðjan Oddi fær Svansvottun

8.1.2010

Prentsmiðjan Oddi hefur náð þeim árangri að standast kröfur Svansins. Það tryggir að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa.

„Það er mikið gleðiefni að stærsta prentsmiðja landsins sé nú formlega Svansmerkt og taki þannig þátt í því að byggja upp sjálfbært samfélag. Ég vil óska Odda til hamingju með þennan merka áfanga. Hér greini ég jákvæðar afleiðingar vistvænnar innkaupastefnu ríkisins í verki, en áhugi á umhverfisvottun hefur aukist mjög frá því að ríkisstjórnin samþykkti stefnu um vistvæn innkaup í mars síðastliðnum. Oddi er annað fyrirtækið sem ég veiti Svansvottun á stuttum tíma og vona ég að þeim fjölgi jafnt og þétt á þessu ári" segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.

„Við hjá Odda leggjum mikið upp úr því að okkar vörur séu framleiddar í sátt við umhverfið og er Svansvottunin einn áfangi af mörgum til að svo geti orðið. Umhverfisvottun Svansins er stór þáttur í að tryggja það að Oddi verði áfram í fararbroddi í íslenskum prentiðnaði hvað umhverfismál varðar" segir Jón Ómar Erlingsson framkvæmdastjóri Odda.

Fræðast má um norræna umhverfismerkið Svaninn á heimasíðunni svanurinn.is.



 

Efst á baugi






Stoðval