Um ráðherra
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
Svandís Svavarsdóttir er fædd 24. ágúst 1964. Eiginmaður Svandísar er Torfi Hjartarson lektor og eiga þau fjögur börn.
Svandís lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983 og BA prófi í almennum málvísindum og íslensku frá Háskóla Íslands 1989 og stundaði MA-nám í íslenskri málfræði 1989-1993.
Hún starfaði sem stundakennari í almennum málvísindum og íslensku við Háskóla Íslands 1990-1994.
Hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarkskertra við rannsóknir á íslenska táknmálinu 1992-1994.
Var kennslustjóri í táknmálsfræði og táknmálstúlkun við Háskóla Íslands 1994-1998.
Starfaði hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra við rannsóknir, ráðgjöf og stjórnun 1998-2005.
Framkvæmdastjóri Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2005-2006.
Borgarfulltrúi Vinstri grænna 2006-2009.
Formaður VG í Reykjavík 2003-2005.
Fulltrúi í jafnréttisráði 2007-2009.
Varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 2007-2009.
Varafulltrúi í menntaráði Reykjavíkurborgar 2004-2006.
Fulltrúi í stjórn ÍTR 2005-2006.
Í Menntaráði Reykjavíkur 2006-2007.
Í Leikskólaráði Reykjavíkur 2006-2007.
Í Borgarráði Reykjavíkur 2007 - 2009.
Í Skipulagsráði Reykjavíkur 2006 - 2009.
Fulltrúi í Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur 2007 - 2009.
Fulltrúi í Stjórnkerfisnefnd 2007 - 2009.
Svandís var kosin alþingismaður fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð í Reykjavíkurkjördæmi Suður 25. apríl 2009. Hún tók við embætti umhverfisráðherra 10. maí 2009.
Upplýsingar um störf Svandísar á Alþingi (vefur Alþingis).

