Stofnanir
Stofnanir sem heyra undir umhverfisráðuneytið
| Brunamálastofnun Skúlagötu 21 101 Reykjavík Sími: 591 6000 |
Brunamálastofnun hefur á hendi eftirlit með öllum brunavörnum og brunamálum í landinu. Stofnunin skal hlutast til um að farið sé í hvívetna eftir lögum og reglugerðum um brunavarnir og brunamál. |
| Landgræðsla ríkisins Gunnarsholti 851 Hellu Sími: 488 3000 |
Landgræðsla ríkisins vinnur fyrir stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila að stöðvun jarðvegs- og gróðureyðingar, endurheimt landgæða, gróðurvernd og gróðureftirliti. Ennfremur að rannsóknum og þróun á þessu sviði og fræðslu. Þá er stofnunin í forsvari fyrir Íslands hönd í erlendu samstarfi á sviði landgræðslu. |
|
Landmælingar Íslands |
Hlutverk Landmælinga Íslands er að afla, vinna úr, geyma og selja landfræðileg gögn og upplýsingar um Ísland með þeim gæðum sem samfélagið, fyrirtæki og einstaklingar hafa þörf fyrir á hverjum tíma. |
| Náttúrufræðistofnun Íslands Hlemmi 3 Pósthólf 5320 105 Reykjavík. Sími: 590 0500 |
Stofnunin skal stunda undirstöðurannsóknir í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði landsins og annast skipulega heimildasöfnun um náttúru landsins. Hún skal varðveita niðurstöður og eintök í fræðilegum söfnum er veiti sem best yfirlit um náttúru landsins. |
| Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn Skútustöðum 660 Reykjahlíð Sími 464 4281 |
Stöðin sér um að framkvæmdar verði þær rannsóknir sem eru nauðsynlegur grundvöllur verndunar Mývatns og Laxár og er stjórnvöldum til ráðgjafar um allt það er lítur að náttúruvernd í Skútustaðahreppi og í og meðfram Laxá til sjávar. |
| Skipulagsstofnun Laugavegi 166 150 Reykjavík Sími: 595 4100 |
Hlutverk stofnunarinnar er að hafa eftirlit með framkvæmd skipulagslaga og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim, að veita ráðgjöf um skipulags- og byggingarmál, að sjá um að upplýsingar um áætlanir um landnotkun á landsvísu séu fyrir hendi og stuðla að innbyrðis samræmi þeirra, og að framfylgja ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum. |
| Skógrækt ríkisins Miðvangi 2-4 700 Egilsstaðir Sími: 471 2100 |
Skógrækt ríkisins er þekkingar-, þróunar- og þjónustuaðili, sem vinnur með og fyrir stjórnvöld, almenning og aðra hagsmunaaðila að rannsóknum, þróun, ráðgjöf og þekkingarmiðlun á sviði skógræktar. Þá er stofnunin í forsvari fyrir Íslands hönd í erlendu samstarfi á sviði skógræktar. |
|
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar 600 Akureyri |
Stofnunin er samstarfsvettvangur þeirra sem sinna málefnum norðurslóða hér á landi og er ætlað að efla umhverfisrannsóknir á norðurslóðum og stuðla að sjálfbærri þróun og efla þátttöku Íslendinga í alþjóðasamstarfi á því sviði. Stofnunin hefur aðsetur á Akureyri. |
| Umhverfisstofnun Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími: 591 2000 |
Hlutverk stofnunarinnar er að stuðla að velferð almennings með því að beita sér fyrir heilnæmu umhverfi, öruggum neysluvörum og verndun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. |
| Úrvinnslusjóður Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími: 517 4700 |
Úrvinnslusjóður sér um umsýslu úrvinnslugjalds og ráðstöfun þess. Hann skal með hagrænum hvötum koma upp skilvirku fyrirkomulagi á úrvinnslu úrgangs sem er tilkominn vegna vara sem falla undir lög um Úrvinnslusjóð. |
| Vatnajökulsþjóðgarður Klapparstíg 25-27 101 Reykjavík Sími: 575 8400 |
Vatnajökulsþjóðgarður fer með stjórn þjóðgarðsins, rekur gestastofur hans, sinnir landvörslu og veitir gestum þjóðgarðsins fræðslu og þjónustu. |
| Veðurstofa Íslands Bústaðavegi 9 150 Reykjavík. Sími: 522 6000 |
Hlutverk Veðurstofu Íslands er að annast veðurþjónustu á landi og sjó og í lofti, auk þess að vakta snjóflóð, hafís og jarðskjálfta. Þá skal Veðurstofan stunda rannsóknir á veðurfari landsins og veita stjórnvöldum ráðgjöf í þeim málaflokkum sem starfsemi stofnunarinnar nær yfir. |

